Margrét's profileMargrétPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
MargrétMér finnst gaman að ferðast 29 October StíllJá nú er mikið um að vera á heimilinu þar sem dæturnar eru að taka þátt í hönnunarkeppni félagsmiðstöðva Stíl. Saumavélin mín til 10 ára öðlaðist nýtt gildi í vikunni. Græjan hefur ekki virkað hjá mér og ég reyndi mikið á sínum tíma til að vera húsleg, en ekkert gekk og vélin sett á góðan stað þar sem hún sást varla. Anna Jórunn sat við vélina í 2 klukkutíma og skrúfaði í sundur hitt og þetta, meðal þess sem hún fann var brotin nál og eitthvað fleira. Ég hugsa að brotna nálin hafi nú samt verið aðal málið með að hún virkaði ekki. En nú eru dæturnar búnar að hanna og sauma þetta fína dress fyrir keppnina sem verður annað kvöld. Vanessa (bekkjarsystir þeirra systra) sér um hár og förðun, Þórhildur Eir um hönnun og er módel og Anna Jórunn um hönnun og saumaskap. Það verður gaman að sjá svo hvernig þeim gengur.
Vetrarfríið er framundan og stefnan sett á Vaðlaborgir í Eyjafirði sem er reyndar næsta hús við Jóhannes í Bónus. Ætli maður kíki ekki í kaffi á kallinn og skelli sér í laugina hjá honum. Við erum sko bara með pott.
17 October 101Var að skoða moggann í gærkvöldi og sá þar skútuna sem Ingibjörg Pálma var að láta smíða. Vá hvað þetta var flott fley. Sá að það verður hægt að leigja hana á Miðjarðarhafinu. Nú ég pantaði hana auðvitað í snarhasti fyrir stórfjölskylduna næsta sumar og þar sem við (þjóðin) eigum hluta í henni fékk ég 2 vikur á spottprís. Ég er strax farin að telja niður. Set hér inn linkinn á myndirnar svo systur mínar geti farið að skoða og láta sig hlakka til. http://www.largeyachtsolutions.com/pdf/boat_internationalaug08.pdf
Gott veður í dag en spáir köldu um helgina. M+P eru að fara norður í bústað um helgina og mér skilst að pabbi ætli bara að vera í pottinum.
08 October Spurning hvort maður ætti að byrja að blogga afturJá nú er langt síðan ég hef farið hér inn maður minn.
Var að spá í hvort ég ætti að byrja að blogga aftur og ætla að taka smá prufu á þessu.
Þar sem ég er mikil áhugamanneskja um veður þá ausrigndi hér í gær og á að gera aftur á morgun, en í dag er glampandi sól og fínt veður.
Ég fór til Tenerife í viku í september og var það eitt besta frí sem ég hef farið í lengi. Mikil sól og fáar búðir (dæturnar eru sko orðnar 14 ára). Algjörlega dásamlegt frí með stórfjölskyldunni, en mamma og pabbi, Ingibjörg og co og Þóra Matthildur og co voru líka í túrnum.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en set kannski inn myndir hér eða á Facebookinu frá Tenerife ferðinni.
kv.
Margrét 27 October Vetrarfríið nálgastÞetta árið ætla ég að taka þátt í vetrarfríinu í fyrsta skipti. Fyrirhugað er að fara til Akureyrar og vera í sumarbústað að Vaðlaborgum. Nú spyrja sig sjálfsagt margir, hvar eru þessar Vaðlaborgir? Jú, þær eru beint á móti Akureyri en þar er verið að byggja upp sumarbústaðarland þar sem verða 30 bústaðir. 8 eru tilbúnir og á Umhyggja (félag langveikra barna) 2 þeirra. Við sóttum um og fengum, frábært. Rúm fyrir 8 manns og ég er búin að bjóða Ingibjörgu og Co og mömmu og pabba að kíkja. Við hljótum að komast öll fyrir á þessum 80 fermetrum. Þetta verður æði.
Var í foreldraviðtali í gær og þær eru að plumma sig vel í skólanum dæturnar, alltaf gaman að fá góða umsögn.
Ég er komin á nagladekkin en tveimur dögum síðar er allt orðið autt og bara rigning. En það er snjór í fjöllunum svo ef ég þarf yfir skarð er ég í góðum málum.
Bíð spennt eftir næstu sunnudagsgátu.
Heimasíða Vaðlaborga er www.vadlaborgir.is fyrir þá sem hafa áhuga á að kíkja á bústaðinn. 24 October Nú er hann svalurJá gott fólk, nú er hann svalur. Frost, vindur og bara ískalt úti
Annars var árshátíð G. Skúlasonar haldin á laugardaginn í Egilsbúð á hinu árvissa showi Brján hópsins sem var að þessu sinni tileinkað Queen. Ég verða að segja eins og margir aðrir að þetta var meira svona tónleikar. Góð tónlist, góðir sögnvarar en lítið meira. Það þarf að hafa eitthvað til að horfa á líka af því að annars fer bara fólk úr salnum. En við skemmtum okkur bara vel í góðra vina hópi, en fórum reyndar snemma heim.
Annars er lítið að frétta annars, kötturinn er komin útivistarbann yfir nóttina svo að við vöknum ekki við fuglasöng (reyndar frekar svona hróp á hjálp) á morgnana.
Sunnudagsgátan í mogganum er ekki alveg búin, vantar 3-4 orð.
12 October Ég er á lífiJæja, sælir mínir dyggu lesendur
Hér hefur ýmislegt gerst undanfarið get ég sagt ykkur.
Matthildur, systur dóttir mín var skírð við voðalega notalega athöfn í Gauksmýrinni og var svaka grillveisla á eftir. Ekkert slor á ferðinni þar segi ég nú bara.
Við erum komin með kött sem eiginlega settist bara upp hjá okkur og við höfðum ekki brjóst í okkur til að senda hann út í vonda veðrið aftur. Hann heitir Brandur Enni og er mikill veiðiköttur. Á þremur vikum hefur hann komið með 8 þresti og 1 mús, mér finnst þetta nú reyndar dálítið mikið.
Skrifstofan var með grillpartý á föstudaginn og var það feyknafjör að vanda, við vorum niðri á Bakka (Rauða torginu) og Jófríður grillaði ofaní okkur.
Ég er með saumaklúbb í kvöld sem er kannski ekki frásögum færandi nema að við fengum nýtt barn í klúbbinn í vikunni, Rakel og Sigurd Jón fengu strák á þriðjudaginn. Spáum í hvað við eigum að færa þeim í kvöld.
Ætli ég segi þetta bara ekki gott í bili 28 August Síðustu vikurPæjumótið á Siglufirði gekk vel en það var ansi blautt og hráslagalegt á okkur. Sem betur fer buðu Jói og Jenný okkur að gista í húsi með sér svo við sváfum bara í þurrum rúmum og höfðum það mjög notalegt. Svo er aðalmálið að vera bara með, er það ekki.
Skólinn er byrjaður og eru dæturnar núna í 7. bekk með tilheyrandi hormónaflæði. Vonandi tekur þetta tiltölulega snöggt af því það er dálítið mikið að vera með þetta svona í öðru veldi.
Ingibjörg og fjölsk. fóru í hestaferð um helgina og var ég á bakvakt með Þórð og frænku hans, mjög þægileg bæði tvö og þurfti lítið fyrir þeim að hafa. En að glamra á hestbaki í svartaþoku, rigningu og tilheyrandi, það skil ég bara ekki. Hestafólkið kom glatt heim og rosalega ánægt með túrinn á sunnudaginn, rennandi blaut og köld inn að beini. Þetta er eitthvað sem ég bara ekki skil því svo er þetta stórhættulegt líka. Ég sé það Gnýr minn að þú skilur mig með þetta því það er alveg satt hjá þér að meira að segja Ingibjörg er farin að velta sér upp úr þessu ættfræðirugli. Svo talar hún um lítið annað en sæðingar og stórgæðinga og aðrar hestasögur. Dáldið þreytandi en maður reynir að sýna þessu áhuga hjá henni.
Svo bauð ég þessum þreyttu ferðalöngum í mat í gær og þau héldu sér varla vakandi yfir matnum, vesalings fólkið. Annars voru mamma og pabbi að koma heim úr ferðalagi líka svo þeim var líka boðið í mat en það var mun léttara yfir þeim enda þau búin að vera í sumarbústað í 10 daga.
Annars erum við stelpurnar að fara til Reykjavíkur um helgina í skoðun o.fl. svo það er alltaf eitthvað um að vera.
Adjö í bili
Margrét |
|
|||
|
|